Hvað er ríkidæmi?
Ríkidæmi er hugtak sem getur átt jafnt við um það þegar einstaklingur er auðugur af fé eða huglægum þáttum. Til að mynda getur einstaklingur sem á góða fjölskyldu talið sig búa við ríkidæmi, enda telur hann fjölskyldu sína vera sitt ríkidæmi.
Ríkidæmi er í raun fullkomnunin á hamingjusömu lífi. Aðili sem telur sig búa við ríkidæmi skortir ekkert, hann er sáttur við sjálfan sig. Aðeins einstaklingur sem er sáttur við sjálfan sig og telur sig ekki skorta neitt, getur verið raunverulega hamingjusamur.
Nýjar fréttir
Ný síða á ensku
Nú hefur verið hafist handa við að setja upp efni rikidaemi.is á ensku á slóðinni www.rikidaemi.is/en. Síðan verður nokkuð frábrugðin þeirri íslensku til að byrja með, en gert er ráð fyrir að þar verði hægt að lesa mörg af þeim helstu ritum sem hafa með lögmál aðdráttaraflsins að gera.
Fróðleiksmoli
Aukning til lífs
Allt líf leitar til aukningar, því það er því eðlislægt að gera slíkt. Fræ sem fellur í jörð verður að plöntu sem vex og gefur af sér fleiri fræ sem þannig viðhalda aukningunni. Það sama á við um aðrar lífverur. Séu spendýr skoðuð, þá eru þau þannig hönnuð að þau geta ekki annað en leitað til aukningar. Megnið af skrokk spendýra er hugsaður til að melta fæðu og koma næringaefnum út til hinna ýmsu hluta skrokksins, svo dýrið geti haldið áfram að næra sig og þannig stækka.
